Þetta helst...

12 september, 2010 - Sævar og Ólína
Á Meistaramóti Andvara helgina 3 - 5 sept sl. keppti Sævar á Ólínu frá Miðhjáleigu sem nú er 6v gömul. Þau kepptu í B - flokki gæðinga í áhugamannaflokki. Gerðu þau sér lítið fyrir og unnu B úrslitin og unnu sér þar með þátttökulrétt í A úrslitum. Þar enduðu þau jöfn í 3 - 4 sæti ásamt þeim Hilmari Binder og Óskari Erni frá Hellu....
20 maí, 2010 - Fyrstu folöldin í ár.
Fyrstu folöld ársins fæddust snemma í morgunn. Það voru þær Blæja og Stássa sem köstuðu báðar hryssum. Stássa fékk brúna hryssu, sem heitir Aska og er undan Aris frá Akureyri en Blæja kastaði jarpri skottóttri hryssu undan Þristi frá Feti og fékk sú nafnið Kvika. Nöfnin þóttu við hæfi eins og ástandið er þessa dagana....
15 maí, 2010 - ... og svo kom askan
Það hlaut að koma að því að askan helltist yfir okkur. Í gær bókstaflega rigndi henni hér niður, en sem betur fer aðeins í stuttan tíma snemma um morguninn. Á meðan á því stóð, var eins og það rigndi drullu! Eftir að öskuskýið gekk hér yfir, gerði væna dembu, sem náði að hreinsa nokkuð af þessu í burtu, en samt var farið í að smúla hús og bíla.Nú í dag er norðanátt og hvasst. Við sleppum því við ö...
11 maí, 2010 - Jórunn
Nú á dögunum birtist Leó hér á hlaðinu á Jórunni, 5v. dóttir þrists frá Feti og sammæðra Krít, undan Dröfn frá Stað.Í hestapestinni sem nú geisar, er Jórunn enn við hestaheilsu og stefnt er með hana í dóm nú í vor. Á heimleiðinni var þeim fylgt eftir og tekin upp smá ræma af merinni. Biðjumst velvirðingar á lélegum myndgæðum. ...
03 maí, 2010 - Krít á Fákssýningu
Krít og Leó gerðu góða ferð í bæinn þann 1. maí sl. en þá var stórsýning Fáks í Víðidal. Við vorum í brúðkaupi Thelmu Kristínar systur, en fréttum að hryssan hefði slegið í gegn á sýningunni. Hún kom þar fram ásamt Dögg frá Steinnesi sem afkvæmi Hryms frá Hofi. Gaman er að sjá Krít blómstra hjá Leó og minnir mann óneitanlega stundum á þá daga, sem sjá mátti til hans á Hrym sjálfum hér á útreiðum f...
17 apríl, 2010 - Myndir frá Karen
Krakkarnir fóru í dag í leiðangur til að taka myndir. Ég fékk nokkrar frá Karen til að setja hingað á síðuna. Bæti smátt og smátt við. Netið hefur verið mjög slæmt hjá okkur og varla hægt með nokkru móti að komast neitt um það, en það gengur þó hjá mér með því að notast við Nova pung.Núna þegar líður á, er magnað að sjá kraftinn sem er ennþá í gosinu og eldingarnar sem sjást vel þó enn sé bjart.{m...
17 apríl, 2010 - Gos, og það ekkert smá!
Hvar ætlar þetta að enda eiginlega? Maður spyr sig, þegar fjallið góða sem hefur skýlt okkur í hvössum norðaustan áttum tók upp á því að fara að gjósa upp úr sjálfum jöklinum á toppnum. Gos er ekki bara gos, það er nokkuð ljóst, því þessu fylgir mikil aska og var sjónarspilið í gærkvöldi þegar rofaði til alveg rosalegt. Um kvöldið þegar dimmdi, þá tók ekki minna við, því þá sáust eldingar og spren...
15 apríl, 2010 - Enn gýs, og nú sjálfur jökullinn!
Þar sem við þurftum að fara að heiman í gær, og eyða deginum í 'biðstöðu', vorum við ásamt fleiri sveitungum í Hvolskóla megnið af deginum.Krakkarnir fóru í sjoppuna og lentu í viðtali þar. Þetta eru Eyþór á Kanastöðum, Gunna í Stóru-Hildisey II og Óðinn.Til að sjá viðtalið þarf að smella á titilinn hér efst....
06 apríl, 2010 - Krít á Ístölt
Krít frá Miðhjáleigu keppti um daginn á 'Þeir allra sterkustu' á ísnum í laugardal.Henni gekk ágætlega, ekkert klikkaði og fékk hún ágætis dóma. Fyrr í vetur fór Leó með hana á Svínavatn, þar sem hún varð efst eftir forkeppni en endaði í öðru sæti.Krít er aðeins á 6. vetur, dóttir Hryms frá Hofi og Drafnar frá Stað....
06 apríl, 2010 - Gos í næsta nágrenni
Já, eins og flestir vita, þá tók fjallið sem blasir við okkur út um gluggann hér á bæ, upp á því að gjósa á dögunum.Heimilisfólkið sefur þokkalega rólegt yfir þessu, en fylgist grannt með fréttum áður en gengið er til náða.Búið er að fara tvær ferðir að kíkja á herlegheitin, en við stilltum okkur upp hinum megin við Húsadal, Fljótshlíðar megin. Útsýnið var afar flott og gaus af krafti á meðan við ...
26 desember, 2009 - Reiðtúr á jóladag
Þau skelltu sér á hestbak í blíðunni í gær, jóladag, systkinin Aldís og Óðinn. Aldís er á Mynd frá Skíðbakka og Óðinn er á Viktori frá Þingnesi. Nokkur ár eru liðin síðan við höfðum hross á húsi yfir vetrartímann og var þetta fyrsti reiðtúr vetrarins hjá þeim enda hrossin nýlega komin á hús.Hulda kemur og trimmar hrossin í jólafríinu, þangað til hún fer aftur á Hvanneyri, þar sem hún er búin að ve...
03 desember, 2009 - Ný söluhross
Komin eru ný söluhross á síðuna ásamt vídeó bútum af þeim.Um er að ræða unga og efnilega Kjarnadóttur, Æsu frá Miðhjáleigu, sem myndin hér til hliðar er af, ásamt þeim Skúm frá Hákoti og Össu frá Búlandi, en þau er bæði þaulreynd reiðhross.Nánari upplýsingar um þessi hross er að finna undir Söluhross.Vídeó má finna með því að smella á myndina af Æsu og velja úr listanum....
27 nóvember, 2009 - Taumlausir tígrar
Það er alltaf stór áfangi í lífi hvers og eins þegar kemur að þeim degi að ljúka framhaldsnámi.Þær voru í feikna stuði, vinkonurnar Hulda og Rakel á dögunum, þegar krakkarnir dimmiteruðu, sem ætla að útskrifast frá FSU nú um jólin, eða kláruðu síðasta vor eins og Hulda.Búningarnir eru Tumi Tígur úr Bangsimon....
26 nóvember, 2009 - Hvolpar
Þann 9. nóvember sl. eignaðist tíkin okkar hún Tóta 3 hvolpa. Eina tík og tvo hunda. Það telst svo sem ekki til tíðinda, en Tóta hefur nokkrum sinnum átt hvolp, eða hvolpa, en aldrei áður 3, alltaf bara 1 eða 2. Hvolparnir vaxa og dafna og eru búnir að opna augun og byrjaðir að skoða heiminn í kringum sig....
16 nóvember, 2009 - Ormalyf og örmerki
Nú er búið að gefa hryssum, folöldum og reiðhestum ormalyf ásamt því að örmerkja folöldin. Að venju komu þeir hingað þeir Sævar Leifsson og Siggi Ævars ásamt fjölskyldum og áttum við góðann dag í hrossastússi.Enn er eftir að gefa unghrossum og tryppum inn ormalyf en það verður væntanlega gert einhvern næstu daga.Siggi gefur Kaptein frá Miðhjáleigu skammtinn sinn...
11 nóvember, 2009 - Bingó!
Nú er búið að halda Rauðhettu, sem í daglegu tali gengur undir nafninu Bingó-skjóna. Hún er nú fylfull við hestinum Valshamri frá Reykjavík, sem er undan Völu frá Reykjavík og Glampa frá Vatnsleysu. Það er knapinn á Bingó-Skjónu, Leó Geir, sem á fylið.Alltaf stóð til að taka upp videó af Rauðhettu í sumar, til að eiga af henni, þar sem hún nú komin í ræktun, en einhverra hluta vegna leið sumarið á...
02 október, 2009 - Ljóska frá Skíðbakka 1
Þessi stóra leirljósa meri, Ljóska frá Skíðbakka 1, er nú komin á söluskrá hér á síðunni. Hún fór á dögunum í trimm, eftir að hafa fengið smá frí eftir sumarið. Ljóska er undan Mekki frá Hólmahjáleigu og Nísku frá Reykjavík. Hún er alhliða geng, viljug og rúm....
01 október, 2009 - Kornsláttur
Það er alltaf viss léttir þegar búið er a þreskja kornið. Veður hafa ekki verið hagstæð í september, miklar rigningar, en þó hefur tekist að þreskja flesta akra hér í sveitinni þegar stytt hefur upp. Síðustu ár höfum við sýrt kornið og valsað beint á akrinum, en núna ákváðum við að prófa að láta þurrka það....
13 september, 2009 - Kvennareið
Eins og undanfarin ár, var haldin kvennareið hér í Austur-Landeyjum. Tókst hún afskaplega vel og var mikil þátttaka, ungra sem eldri kvenna af hinum ýmsu þjóðernum. Riðin var frábær leið, frá Voðmúlastöðum, inn í gegnum landið þeirra, Búlands, Grenstanga, Svanavatns og Búðarhóls og endað á Guðnastöðum, þar sem beið okkar frábær matur, tónlist og skemmtun.Veðrið var gott, en blautt, þannig að símin...
10 september, 2009 - Síðasta folaldið
Fimmtudaginn 3. september fæddist síðasta folaldið hjá okkur. Það er hestfolald undan Kjerúlf frá Kollaleiru og Sigurrós frá Miðhjáleigu, sem er undan Töfra frá Kjartansstöðum og Viktoríu frá Þingnesi.Ákveðið var að láta reyna á það hvort Sigurrós fyljist á næstu dögum, og var hún því keyrð til Klængs frá Skálakoti.Þegar við höfðum smalað, og átti að mynda gripinn, sem fengið hefur nafnið Skuggi,...
05 september, 2009 - Kveðjustund
Um daginn seldi ég hana Orku, sem hefur verið reiðhrossið mitt sl. 5 ár og borið mig um fjöll og fyrnindi í hestaferðum, viljug og dugleg. Orka er dóttir Orions frá Litla-Bergi og Rökkvu frá Miðhjáleigu, sem einnig er móðir þeirra Rauðhettu og Blæju sem við eigum.Undan Orku eigum við efnilegan 5 vetra fola, Brand-Ara, sem er undan Leikni frá Vakurstöðum....
05 september, 2009 - Óboðinn gestur
Þessi fallegi smyrill var kominn í sjálfheldu inni í hesthúsi, flaug þar um og reyndi að komast út um gluggana.Ekki veitti af þykkum hönskum til að handsama hann, því hann reyndi ítrekað að bíta og það fast.Smyrillinn var samt hinn rólegast þegar við sýndum krökkunum hann og leyfði okkur að mynda sig í bak og fyrir.Að klappinu og skoðun lokinni flaug hann feginn í frelsið, tignarlegur og fallegur ...
31 ágúst, 2009 - Erró, nýr heimilismeðlimur
Óðinn keypti sér hvolp á dögunum, sem hann skýrði Erró. Hann er af tegundinni Papillon, sem eru eyrnastórir smáhundar. Ekki aftrar það honum þó lítill sé og aðeins 9 vikna, að leika sér við Uglu og Tótu, en hann hamast með þeim hér úti.Á myndinni er hann búinn að ná í greinarbút, sem Ugla var að naga í rólegheitunum....
31 ágúst, 2009 - Þórsmerkurferð
Síðastliðin ár höfum við farið í góðra vina hópi inn í Þórsmörk síðustu helgina í ágúst á hestum. Þetta er alltaf jafn frábær ferð, margt brallað, hlegið og skemmt sér mikið.Eins og gefur að skilja getur brugðið til allra átta með veðurfar þegar komið er fram á þennan tíma, en að þessu sinni var veðrið frábært í alla staði, heiðskýr himinn og sólskin allann tímann.Smellið hér, til að sjá nokkrar m...
31 ágúst, 2009 - Sónarskoðun
Við rákum merarnar heim um daginn og sónuðum þær sem ekki var hægt að staðfesta fyl í fyrr í sumar og svo voru nokkrar merar hjá Orion gamla, 24 vetra gömlum núna seinni partinn í sumar, sem voru sónaðar líka. Sá gamli sinnti tæplega 20 hryssum fyrri partinn í sumar. Góðann gest bar að garði þegar við vorum að ragast í stóðinu og var fast skotið í ræktunarmálum, pólitík og hinum ýmsu málum, allt á...
22 ágúst, 2009 - Vallarmót
Hafnfirðingarnir Sævar Leifs, Leifur, Viktor og Hafdís Arna, skelltu sér á Vallarmótið með fulla kerru, alls 5 hesta, og náðu sér öll í verðlaun, hvert í sínum flokk. Sævar vann karlaflokkinn á hinni ungu og litfögru Rammadóttur, Ólínu frá Miðhjáleigu. Ólína er náskyld Rauðhettu, því Blæja móðir hennar og Rauðhetta eru systur.Ekki náðist mynd af þeim í dag, en hér fylgir ein síðan í vor....
22 ágúst, 2009 - Tryppum sleppt
Nú er búið að ríða tryppunum í allt sumar og kominn tími á smá hvíld fyrir þau. Við slepptum því öllum 4v og nokkrum 5v í gær.Enn er eftir að fara í tvær ferðir og eitthvað á eftir að nota hross meira fram á haustið við smölun og annað stúss....
22 ágúst, 2009 - Rauðhetta dæmd
Rauðhetta fór í kynbótadóm sl. fimmtudag og gekk ágætlega. Einhverra hluta vegna, þá hefur hún aldrei hotið sama byggingardóm, en hún hefur verið sýnd 4 sinnum. Að þessu sinni hækkaði hún aðeins fyrir hæfileka, en hún hlaut 8.5 fyrir tölt, brokk og vilja, og 9 fyrir fegurð í reið....
13 júlí, 2009 - Hestaferð í Mýrdalinn
Fórum í frábæra hestaferð í Mýrdalinn undir öruggri leiðsögn Hermanns Árnasonar og frábæru fæði Sigríðar Magnúsdóttur konu hans. Hópurinn hélt til í Ketilstaðaskóla og riðum við út þaðan skemmtilegar dagleiðir....
15 júní, 2009 - Bósi gæsarungi
Margt getur gerst í sveitinni!Um daginn voru þau Aldís og Óðinn í reiðtúr í mýrinni að gá að folöldum, og riðu fram á gæsaregg á víðavangi. Óðinn tók eggið, setti það í vasann og fór með það heim, þar sem hann bjó um það í Macintosh dós og setti borðlampa yfir til að hita það.  Daginn eftir fóru þau og fundu gæsahreiður með nokkrum eggjum og tóku 2 og fóru með heim, hinu til samlætis.Ekki leið á l...
04 júlí, 2009 - Tamningar ganga vel
Vel gengur með tryppin og eru þau að komast í gott trimm fyrir hestaferðina í Mýrdalinn. Við munum að vísu ekki taka þau yngstu með, en látum duga frá 5 vetra. Hér er Viktoria að kenna Fróða undirstöðuatriðin....
29 júní, 2009 - Upphitun fyrir hestaferð
Þegar fara á í langa og stranga hestaferð, er ágætt að skella sér í styttri túra á heimaslóðum til að trimma hross og menn. Við fórum öll úr ferðahópnum ásamt þeim Axel og Silju, í skemmtilegan Landeyjahring, sem við skiptum í 2 daga.  Passlegt fyrir hesta og menn svona í fyrsta kastið.Það leiðinlega óhapp varð kvöldið áður, að Jónína lenti í hremmingum í byrjun reiðtúrs og duttu bæði hesturinn og...
22 júní, 2009 - Viktoria komin
Þá er fullskipað lið við tamningar og þjálfun. Viktoria er mætt til hjálpar Huldu og hafa þær í nógu að snúast.Hún hefur lokið BS í búfræði við landbúnaðarháskólann í Uppsala og var einnig 1 ár á Hólum.  Viktoria hefur komið sér upp heimasíðu þar sem hún kynnir þjónustu af ýmsu tagi er við kemur hestamennsku.Íslandshestar heitir síðan, endilega kíkið á....
22 júní, 2009 - Sleppitúr hjá Hafnfirðingum
Það fylgir sumarkomunni að vinir okkar úr Hafnarfirði, þeir Siggi Ævars og fjölskylda og Sævar Leifs og fjölskylda koma ríðandi með hestana sína í sumarbeit.  Með þeim í för hafa komið þau Gylfi og Magga úr Mosfellsbæ og höfum við reynt eftir fremsta megni að slást í för með þeim og ríða a.m.k. hluta túrsins með þeim.Að þessu sinni slepptu þau hestunum sínum í Hvolsvelli og riðu þaðan að Grímsstöð...
08 júní, 2009 - Hulda mætt til starfa
Nú er Hulda mætt og allt komið á fullt við að kynnast tryppunum, sem öll virðast þæg og fara vel af stað. Mikið munar um hesthúsið, sem komið er í fulla notkun.Á myndinni er Hulda að prófa 4 vetra hryssuna Ísabellu frá Stóru- Hildisey I, sem er undan Íli frá Engimýri, en sá er undan Baldri frá Bakka....
30 maí, 2009 - Smalað
Nú er búið að smala heim all nokkrum tryppum, bæði 4. vetra, sem hafa verið gerð reiðfær í vetur og 5. vetra, sem aðeins var riðið síðasta sumar. Einnig eru nokkur 6 og 7 vetra hross til þjálfunar.  Von er á tveimur skvísum sem ætla að vinna hér við tamningar og þjálfun í sumar, þeim Huldu Jónsdóttur úr Hvolsvelli og Viktoriu Östlund frá Svíþjóð, sem var hér hjá okkur sumarið 2006.Þær fá því nóg ...
27 maí, 2009 - Hesthúsið að verða klárt
Þá er hesthúsið farið að taka á sig endanlega mynd, bæði inni og úti.Búið er að sjóða upp rétt, sem hægt er að skipta í þrennt ef á þarf að halda.Enn er verið í lokafrágangi inni og verið er að bíða eftir hentugu veðri til að steypa stéttar meðfram húsinu....
25 maí, 2009 - Kýrnar út !
Veðrið síðustu daga hefur vægast sagt verið afskaplega undarlegt. Eina mínútuna er sól og blíða og þá næstu er komið él eða dembandi rigning.Við nýttum daginn í gær til þess að setja kýrnar og nokkrar kvígur út og var fjör hjá þeim að vanda. Ekki stóð á veðurguðunum að hræra aðeins upp í stuðinu, því það dundu á þrumur og eldingar um miðjann daginn og á eftir fylgdi gífurleg rigning, en allt varð...
19 apríl, 2009 - Vorverk
Þá eru vorverkin hafin í sveitinni. Allt þarf að gerast á sem skemmstum tíma, en talsverð vinna er við jarðvinnslu, haugkeyrslu og áburðardreifingu.Þessi mynd var tekin út um afturhlerann á traktórnum þegar verið var að plægja....
02 apríl, 2009 - Noregsferð
Í tilefni fermingar Óðins, þá skelltum við okkur þrjú, ég (Bertha), Aldís og Óðinn til Noregs á skíði.Það lá beinast við að fara til Osló, þar sem ég bjó þegar ég var á Óðins aldri og stundaði skíðin grimmt. Krakkarnir hafa aðeins farið á skíði í skólaferðalögum, en ég hef ekki prófað það síðan ég flutti frá Noregi, 15 ára gömul.Allt gekk þetta stórslysalaust og við fengum einstaklega gott veður ...

Myndir af handahófi

kleo.jpg
  • Söluhross
  • Unghross
Mynd frá Skíðbakka I IS2003284367
Mynd er moldótt stór og myndarleg hryssa.F: Klaki frá Skíðbakka I...
Grótta frá Miðhjáleigu IS2004284543
Grótta er jörp 4-gangshryssa. Efnilegt keppnishrossF: Gauti frá Rey...
Brandur Ari frá Miðhjáleigu IS2004184538
Brandur Ari er móálóttur, stjörnóttur og með vagl í augaF: Leik...
Ugla frá Bólstað IS2005284344
F: Gígjar frá AuðsholtshjáleiguM: Orka frá BólstaðUpplýsingar ...
Árgangur 2009
Hallveig F: Fróði frá Staðartungu M: Stássa frá Miðhjáleigumer...
Árgangur 2008
Greipur  F: Glóðar frá Reykjavík M: Viktoría frá ÞingnesiGunnv...
Árgangur 2007
Rannsý  F: Hróður frá Refsstöðum M: Sveinsína frá ÞingnesiOr...
Árgangur 2006
Háfeti F: Lúðvík frá Feti M: Viktoría frá ÞingnesiKarólína F...
  • Stóðhestar
  • Ræktunarhryssur
Kjarni frá Þjóðólfshaga
M: Kringla frá KringlumýriF: Andvari frá Ey ...
Þristur frá Feti
M: Skák frá FetiF: Orri frá Þúfu ...
Hákon frá Ragnheiðarstöðum
M: Hátíð frá ÚlfsstöðumF: Álfur frá Selfossi Heimasíða Há...
Töfri frá Kjartansstöðum
M: Terna frá KjartansstöðumF: Óður frá Brún ...
Kleópatra frá Miðkoti
Kleópatra frá Miðkoti IS1999284625M: Mánadís frá Miðkoti IS1991284622F: Orri frá Þúfu IS...
Viktoría frá Þingnesi
Viktoría frá Þingnesi IS1992235501M: Ótta frá ÞingnesiF: Léttir frá Grundarfirði ...
Dama frá Gunnarsholti
  Dama frá Gunnarsholti IS2984286001M: Dimma frá Gunnarsholti IS1981286010F: Rökkvi f...
Syrpa frá Búlandi
Syrpa frá Búlandi IS1987284340 M: Drottning frá Miðhjáleigu IS19AA284012F: Þróttur frá Mi...

Gestir

Það eru 3 gestir á síðunni núna

Hafið samband

Miðhjáleiga í Austur Landeyjum

Sími 00354-4878529

midhjaleiga@gmail.com

Bertha G. Kvaran s: 848-1129

Jón Þ. Ólafsson s: 894-6406

Hestaferð í Mýrdalinn